Heilsa

Dásamleg sykurlaus hindberja jógúrt

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty

Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september. Við munum fjalla um kosti þess að sleppa sykri og hvað getur komið í staðinn þegar löngunin í sætindi hellist yfir.

Stevía er eitt af því sem hægt er að nota í stað hefðbundins sykurs og er tölvuvert hollari kostur.  Hún er náttúruleg, er hitaeiningasnauð og hefur ekki áhrif á blóðsykurinn.

Hér kemur einföld uppskrift af sykurlausri jógúrt með stevíu sem er frábær sem morgunverður eða millimál.

Uppskrift:

1 hrein grísk jógúrt

3 dropar hindberjastevía

4 matskeiðar sykurlaust múslí

1/2 grænt epli

10 hindber

Skerið eplið niður í litla bita og þvoið hindberin vel. Hrærið hindberjastevíunni vel saman við jógúrtina. Skreytið með múslí, ferskum hindberjum og eplabitum.

Við viljum hvetja þig til góðra verka og drögum út heilsutengda vinninga vikulega í september. Vertu með á Facebook og Instagram og hastaggaðu #heilsuvisir #sykurlausseptember. Myndirnar geta verið af hvatningarorðum, drykkjum, sykurlausum mataruppskriftum, sætum bitum án sykurs, fyrirmyndum og öllu sem að tengist ferðalagi þínu í sykurlausum september.


Tengdar fréttir

Sykurlaus september - ertu með?

Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september.

Sannleikurinn um sykur afhjúpaður

Myndband þar sem kanadíska fréttakonan Gillian Findlay greinir frá helstu rannsóknum á afleiðingum sykurneyslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.