Lífið

Samdi tónverk úr skjálftunum í Bárðarbungu

Bjarki Ármannsson skrifar
Halldór lagði lokahöndina á verkið seint í gærkvöldi.
Halldór lagði lokahöndina á verkið seint í gærkvöldi. Mynd/Eygló Gísladóttir/Skjáskot
Áframhaldandi skjálftavirkni í Bárðarbungu veldur mörgum áhyggjum, en reynist öðrum mikill innblástur. Í gær greindi Vísir frá því að Bæring Gunnar Steinþórsson, starfsmaður CCP, hafi sett upp vefsíðu sem kortleggur skjálftana í þrívídd. Halldór Eldjárn, tónlistarmaður og meðlimur hljómsveitarinnar Sykur, lagði svo seint í gær lokahöndina á tónverk þar sem skjálftunum undanfarna daga er breytt í nótur.

Click here to see an English version

„Ég semsagt hlusta eftir þessum upplýsingum sem eru aðgengilegar á apis.is,“ segir Halldór um sköpunarverkið. „Svo rúlla ég í gegnum þær í tímaröð. Ég skoða hvar skjálftarnir gerast, hversu djúpir og hversu stórir þeir eru, tengi það við hljóðgjafa sem ég forritaði og hann spilar í raun þessi gildi.“

Þannig tákna djúpu nóturnar í verkinu skjálfta sem áttu sér stað á mikilli dýpt, en háu nóturnar skjálfta nær yfirborðinu. Útkoman er frumlegt og stórskemmtilegt verk sem ber heitið „The sounds of the earthquakes in Bárðarbunga.“

„Tónlist er bara gögn, þannig séð,“ útskýrir Halldór. „Þú getur túlkað fimmtu sinfóníu Beethovens sem gögn, sem eru bara ákveðið háar nótur á ákveðnum tímum. Og jarðskjálftar eru ekkert ósvipaðir.“

Aðspurður segist Halldór ekki vera kominn með heiti á þessa nýju tónlistarstefnu en hann óskar eftir góðum tillögum.

„Þetta er mjög gott sem bakgrunnstónlist, ég er búinn að komast að því,“ segir Halldór. „Ég er að vonast eftir því að einhver hljóðfæraleikarinn á Jazzhátíð jafnvel taki þetta og spili yfir þetta. Það væri mjög gaman.“

Hann segir að von sé á meira efni frá „sveitinni,“ enda halda skjálftar áfram í Bárðarbungu. En hvað gerist í tónverkinu ef það gýs að lokum?

„Það verða örugglega miklu fleiri nótur. Og kannski bara hávaði,“ segir hann og hlær. „En það verður bara spennandi.“


Tengdar fréttir

Líkist æ meir kvikuinnskoti sem ekki nái til yfirborðs

Atburðarásin í Bárðarbungu minnir mjög á Kröfluelda, segir Páll Einarsson prófessor, og telur þetta geta verið upphafið að margra ára ferli, en segir þó minnkandi líkur á að eldgos sé yfirvofandi.

Bárðarbunga gæti valdið hamförum við Dettifoss

Almannavarnir lýstu í dag yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu sem staðið hefur yfir í Bárðarbungu frá því í nótt. Kvika er talin vera á hreyfingu í eldstöðinni.

Vefmyndavél komið fyrir við Bárðarbungu

Áhugasamir netverjar geta nú fylgst með öllum helstu hreyfingum Bárðarbungu í beinni á netinu en vefmyndavél var komið upp á Grímsfjalli í Vatnajökli í gær






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.