Matur

Hollar amerískar pönnukökur

Rikka skrifar
mynd/Rikka

Hér kemur uppskrift af gómsætum amerískum pönnukökum úr Léttum sprettum sem einfalt er að búa til. Það besta við þessa uppskrift er að hún er bráðholl.

Amerískar pönnukökur

300 g möndlumjöl

1 msk möluð hörfræ

1/2 tsk salt

1/2 tsk matarsódi

3 egg

180 ml möndlumjólk

2 msk bráðin kókosolía

Setjið þurrefnin saman í skál. Blandið eggjum og mjólk saman í annarri skál og hrærið saman. Bætið kókosolíunni saman við og hrærið saman við þurrefnin. Hitið örlitla kókosolíu á meðalheitri pönnu. Hellið ca 2 msk af deigi á pönnuna og bakið í u.þ.b 2 mínútur á hvorri hlið eða það til að pönnukökurnar hafa bakast í gegn. Endurtakið þar til að deigið er uppurið.  Berið fram með hlynsírópi og bláberjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.