Tónlist

Útgáfunni fagnað í Mengi

Verk Skúla Sverrissonar, Anthony Burr og söngkonunnar Yungchen Lhamo verður leikið í Mengi í kvöld.
Verk Skúla Sverrissonar, Anthony Burr og söngkonunnar Yungchen Lhamo verður leikið í Mengi í kvöld. Mynd/Matthew Eisman
They hold it for certain... er samstarfsverkefni Skúla Sverrissonar, Anthony Burr og söngkonunnar Yungchen Lhamo. Verkið er í senn hljómplata og myndlistarverk  unnið af Ingibjörgu Birgisdóttir og Orra Jónssyni ásamt rithöfundinum Bergsveini Birgissyni.

Þann 21. ágúst opnar sýning á verkinu í Mengi að Óðinsgötu 2 í Reykjavík og verður verkið spilað af hljómplötu í heild sinni. Aðgangur er ókeypis og byrjar viðburðurinn klukkan 20.00 en hljóðhluti verksins verður spilaður klukkan 21.00.

Yungchen Lhamo er tíbetsk söngkona sem flúði heimaland sitt árið 1989 og býr nú í útlegð í New York. Saga hennar er um margt merkileg en hún flúði Tíbet fótgangandi ásamt kornungum syni sínum yfir Himalaya fjöllin, ferð sem tók nokkra mánuði.

Hún hefur sjálf sagt að þegar hún yfirgaf Tíbet hafi hún glatað öllu, öllu nema röddinni sem hún tók með sér til hins vestræna heims. Yungchen hefur átt farsælan feril sem söngkona á alþjóðavettvangi, og starfað með fjölda þekktra tónlistarmanna. Lhamo er virk í baráttu fyrir málefnum Tíbeta og hefur unnið með ýmsum alþjóðlegum félaga- og hjálparstofnunum á borð við Amnesty International auk þess sem hún hefur margsinnis flutt verk sín fyrir Dalai Lama, trúarlegan leiðtoga Tíbeta.

Samstarf Skúla Sverrissonar og Anthony Burr hefur þegar getið af sér hljómplöturnar Desist og A Thousand Incidents AriseThey hold it for certain... er þriðja útgáfa á vegum Mengis en fyrri útgáfur eru The Box Tree með Óskari Guðjónssyni og Skúla Sverrissyni og Temperaments með Kippa Kaninus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.