Lífið

Strákarnir í Geordie Shore segja íslenskar stelpur til í allt

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá nokkur skjáskot úr myndbandinu.
Hér má sjá nokkur skjáskot úr myndbandinu.
„Það eina sem þessar stelpur vilja gera er að verða fullar og kela,“ segir ein stjarnan úr raunveruleikaþáttunum Geordie Shore um íslenskt kvenfólk. Myndband frá heimsókn stjarna þáttarins til Íslands, frá því í apríl er nú komið á netið.

Geordie Shore er bresk útgáfa af bandarísku þáttaröðinni Jersey Shore en báðir þættirnir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni MTV og eru geysilega vinsælir.

Einn þáttur af Geordie Shore var tekinn upp inni á skemmtistaðnum B5 í Bankastræti.  Í myndbandinu sjást stjörnur þáttarins með íslenskum stúlkum og fer einn af strákunum úr þættinum inn á klósett staðarins ásamt einn dömu.

Strákarnir í þættinum tjá sig svo um íslenskar stúlkur og segja þær mikið fyrir að skemmta sér og að þær séu tilbúnar í skyndikynni. „Við vorum búnir að vera hérna í tíu mínútur þegar stúlkurnar byrjuðu að reyna að draga okkur inn á klósett,“ segir ein af stjörnum þáttarins.

Vísir fjallaði um heimsóknina í apríl og birti nokkur tíst af twitter og vísaði fyrirsögn fréttarinnar í eitt tístið sem var: „Eru stelpur í alvöru að hleypa þessum Geordie Shore gaurum upp á sig?“

Hér að neðan má sjá myndbandið af heimsókn Geordie Shore til Íslands.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.