Tónlist

Leita að uppáhalds lagi Íslendinga

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Nýr íslenskur tónlistar-, menningar- og skemmtiþáttur hefur sýningar á RÚV í október að nafni Óskalög þjóðarinnar. Ragnhildur Steinunn og Jón Ólafsson sjá um þáttinn.

„Þetta eru átta þættir og fyrstu sjö þáttunum hefur verið skipt í tíu ára tímabil, frá 1944-2014. Þetta eru 70 ár af íslenskri tónlist en í hverjum þætti verða fimm lög frá hverjum áratug spiluð og sungin af hæfileikafólki,“ segir Jón.

Þjóðarkosning um topp fimm lög hvers áratugar hefst á föstudaginn á ruv.is. „Lögin sem enda í þáttunum munu hafa verið valin af íslensku þjóðinni á vefnum. Þetta er skemmtilegur samkvæmisleikur, við viljum finna út hvaða lög eru hjartfólgnust Íslendingum, hvaða lög eru í mestu uppáhaldi,“ segir Jón.

„Í áttunda þættinum verða síðan lögin sjö úr þáttunum á undan öll sungin og spiluð. Síðan mun þjóðin enn og aftur kjósa og þá sjáum við hvort það sé eitthvað eitt lag sem Íslendingum þykir vænna um en önnur.“

 

En á Jón sitt eigið uppáhalds íslenska lag? „Nei, ekkert eitt, þetta er alltof erfið spurning. En það kemur á daginn þegar maður fer að skoða þetta að við eigum gríðarlega mikið af flottum lögum og textum. Ég held að þetta gæti orðið skemmtilegur þáttur fyrir alla fjölskylduna en þeir þættir sem hafa verið tileinkaðir íslenskri tónlist í sjónvarpi hafa fengið gott áhorf, t.d. Af fingrum fram og Hljómskálinn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.