Fótbolti

Kristinn tryggði Halmstad sigur | Victor lék sinn fyrsta leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn skoraði sitt fimmta deildarmark fyrir Halmstad í dag.
Kristinn skoraði sitt fimmta deildarmark fyrir Halmstad í dag. Facebook-síða Halmstad
Tveimur leikjum er lokið í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Kristinn Steindórsson var hetja Halmstad sem vann mikilvægan situr á Djurgården á heimavelli. Kristinn skoraði sigurmarkið í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Viktor Ljung. Þetta var þriðji deildarsigur Halmstad í röð.

Johan Blomberg kom Halmstad yfir á 30. mínútu, en Martin Broberg jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Þannig var staðan þar til Kristinn skoraði sigurmarkið.

Lokatölur 2-1, Halmstad í vil. Með sigrinum komst liðið upp í 10. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 18 umferðir.

Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta leik fyrir Helsingborg sem gerði gerði markalaust jafntefli við Norrköping á heimavelli. Þetta var fimmta jafntefli Helsingborgar í röð í deildinni.

Guðlaugur, sem gekk til liðs við Helsingborg á dögunum, kom inn á sem varamaður á 75. mínútu fyrir landa sinn, Arnór Smárason. Þá lék Arnór Ingvi Traustason fyrstu 78 mínútur leiksins fyrir Norrköping.

Norrköping situr í 9. sæti með 21 stig, en Helsingborg er í 13. sæti með 19 stig.


Tengdar fréttir

Guðlaugur til Helsingborgar

Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er genginn raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborgar IF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×