Tónlist

Íslenskir rapparar með einkaþotu, þyrlu og dýra bíla

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
B2B eru mættir.
B2B eru mættir.
Rappsveitin B2B hefur sent frá sér sitt fyrsta myndband. B2B stendur fyrir Broke 2 Billionaires. Í myndbandinu við lagið No Love má sjá tvo rappara sveitarinnar í einkaþotu og þyrlu, auk þess sem bíll af tegundinni Aston Martin DB9 er í myndbandinu. Einnig sitja rappararnir í sérsmíðuðum bíl og kasta upp fimm þúsund króna seðlum.

Í B2B eru þeir Alex Þór Jónsson og Cody Shaw, sem er frá Bandaríkjunum. Auk þeirra gefur Róbert Freyr Ingvason út lög undir merkjum B2B, en hann rappar á íslensku.

Í snörpu spjalli við Vísi segja strákarnir að plata sé á leiðinni með sveitinni. Þegar þeir voru spurðir af því svaraði Cody því á ensku: „YES, something dangerous,“ svarar hann.

Þeir félagar ætla sér að gefa út efni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þegar þeir eru spurðir hvort að þetta sé það sem koma skal frá sveitinni; einkaþotur, þyrlur og dýrir bílar svara þeir:

„Þið verðið bara að bíða og sjá.“

Hér að neðan má sjá myndband sveitarinnar við lagið No Love.

Hér fyrir neðan má síðan sjá myndband Róberts Freys við lagið Í nótt.

Tengdar fréttir

„Við viljum bara skapa“

Rappsveitin B2B gaf út sitt fyrsta tónlistarmyndband á dögunum en það er jafnframt fyrsta íslenska tónlistarmyndbandið sem birtist á World Star Hip Hop.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.