Fótbolti

Fyrrum Þórsari stjórnar toppliði dönsku úrvalsdeildarinnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jonas Dal hefur náð frábærum árangri með Hobro IK.
Jonas Dal hefur náð frábærum árangri með Hobro IK. Facebook-síða Hobro
Einhverjir reka eflaust upp stór augu þegar þeir skoða stöðuna í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Á toppi deildarinnar situr Hobro IK, lítið félag frá samnefndum bæ í Norður-Jótlandi sem er að leika sitt fyrsta tímabil í efstu deild. Hobro tyllti sér á toppinn í gær eftir 2-0 sigur á Brøndby á DS Arena í Hobro.

Uppgangur félagsins á undanförnum árum er eftirtektarverður. Vorið 2010 komst liðið í fyrsta sinn upp í 1. deildina (næstefstu deild) eftir að hafa unnið B 93 í tveimur umspilsleikjum, 5-1 samanlagt.

Hobro hafnaði í 12. sæti á sínu fyrsta tímabili í 1. deildinni. Næstu tvö tímabil endaði liðið í 9. sæti, en tímabilið 2013-14 tók Hobro stórt stökk. Liðið lenti þá í 2. sæti og vann sér sæti í úrvalsdeildinni.

Leikmenn liðsins eru flestir hverjir lítt þekktir. Það er t.a.m. aðeins einn erlendur leikmaður í leikmannahópi liðsins; sóknarmaðurinn Quincy Antipas frá Zimbabve, en hann var keyptur fyrir metfé frá Brøndby í sumar.

Antipas er sömuleiðis eini leikmaður Hobro sem hefur leikið A-landsleik, en hann hefur leikið níu landsleiki fyrir Zimbabve.

Mads Hvilsom, sem á marga leiki að baki fyrir yngri landslið Dana, var markahæsti leikmaður Hobro í fyrra með 11 mörk í 33 deildarleikjum. Hvilsom hefur haldið uppteknum hætti í ár, en hann hefur skorað þrjú af fimm mörkum Hobro í úrvalsdeildinni.

Þjálfari Hobro er hinn 38 ára gamli Jonas Dal Andersen, en hann tók við þjálfun liðsins í janúar 2013 eftir að Klavs Rasmussen sagði upp störfum.

Dal þessi hætti knattspyrnuiðkun árið 2002, á 26. aldursári. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hann lék með Þór á Akureyri sumarið 2000.

Dal lék þá sex leiki fyrir lið Þórs sem vann 2. deildina með miklum yfirburðum. Akureyrarliðið, sem var á þeim tíma undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar, núverandi þjálfara Keflavíkur, fékk 52 stig, 18 stigum meira en næsta lið.

Markahæsti leikmaður Þórs þetta sumarið var Orri Freyr Hjaltalín, en hann skoraði 20 mörk í 18 leikjum. Orri leikur með Þórsliðinu í dag - reyndar sem varnarmaður, en ekki sóknarmaður eins og um aldamótin - en hann er sá eini af núverandi leikmönnum Þórs sem spilaði með Dal sumarið 2000.


Tengdar fréttir

Sigur í fyrsta leik Ólafs

Uffe Bech tryggði Norsjaelland sigur í nágrannaslag gegn Vestsjaelland í fyrsta leik Ólafs Kristjánssonar sem þjálfari félagsins í dag

Frábær endurkoma hjá Ólafi og lærisveinum hans

Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í FC Nordsjælland unnu sigur á Esbjerg með þremur mörkum gegn tveimur á heimavelli sínum, Farum Park, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ari og félagar fengu sitt fyrsta stig

Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyrir OB sem gerði 1-1 jafntefli við AaB Álaborg á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×