Fótbolti

HK lagði BÍ í Kórnum

HK er að koma á óvart í 1. deildinni.
HK er að koma á óvart í 1. deildinni. vísir/stefán
HK styrkti stöðu sína í þriðja sæti 1. deildarinnar með góðum 1-0 sigri á BÍ/Bolungarvík í kvöld.

Það var Skagfirðingurinn Árni Arnarson sem skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik.

HK er komið með 20 stig í deildinni eða þremur færra en topplið Leiknis og einu minna en ÍA. HK hefur leikið einum leik meira.

BÍ er aftur á móti í næstneðsta sæti deildarinnar með ellefu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×