Tónlist

Styrktartónleikar UNICEF í Hörpu

Baldvin Þormóðsson skrifar
Tónlistarmennirnir komu allir saman í Hörpu í dag til þess að ræða um verkefnið.
Tónlistarmennirnir komu allir saman í Hörpu í dag til þess að ræða um verkefnið. vísir/arnþór
Næsta fimmtudagskvöld fara fram stórtónleikar í Hörpu til styrktar neyðarhjálp UNICEF í Suður-Súdan.

Á tónleikunum kemur fram fjöldinn allur af listafólki en hljómsveitirnar Hjaltalín og Kaleo stíga á stokk ásamt Snorra Helgasyni og Páli Óskari.

„Þar sem styrjaldarátök brjótast út eru fórnarlömbin alltaf börn. Þau eru alltaf fyrst í röðinni. Okkur ber skylda til að rétta þeim hjálparhönd,“ segir Páll Óskar en hann hefur verið ötull stuðningsmaður UNICEF um árabil.

Tónleikarnir fara fram í Hörpu næsta fimmtudag klukkan 21:00 og miða má nálgast á heimasíðu midi.is.

Fjöldinn allur af tónlistarmönnum kemur fram á tónleikunum.vísir/arnþór
  

Sigríði Thorlacius og Snorra Helgasyni er annt um verkefnið.vísir/arnþór
      






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.