Fótbolti

Barcelona keypti markverði fyrir 3,2 milljarða

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Claudio Bravo kynntur til sögunnar í dag.
Claudio Bravo kynntur til sögunnar í dag. vísir/getty
Barcelona tók heldur betur til hendinni í markvarðarkaupum í sumar, en það þurfti að fylla í skörð Víctors Valdés og José Manuel Pinto sem báðir yfirgáfu félagið eftir tímabilið.

Börsungar kynntu Sílemanninn ClaudioBravo til leiks í dag sem nýjasta leikmann félagsins, en hann kemur til Barcelona frá Real Sociedad þar sem hann hefur spilað síðan 2006.

Þetta er mikill missir fyrir AlfreðFinnbogason og félaga hans hjá baskaliðinu en Bravo, sem er 31 árs gamall, hefur verið einn af betri markvörðum deildarinnar undanfarin ár. Hann er einnig fyrirliði landsliðs Síle og stóð sig vel á HM þar sem liðið komst í 16 liða úrslit.

Samkeppnin um aðalmarkvarðarstöðuna hjá Barcelona verður mjög hörð því fyrr í sumar keypti félagið hinn 22 ára gamla Marc-André ter Stegen frá Borussia Mönchengladbach. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann staðið vaktina í þýsku 1. deildinni í þrjú ár.

Það virðist ljóst að hvorugur þeirra mun hafa það jafnnáðugt og Valdés hafði með Pinto sem varamann sinn, en það velktist enginn í vafa um hvor væri númer eitt þegar þeir spiluðu saman.

Marc-André ter Stegen þarf að berjast fyrir stöðunni sinni.vísir/getty
Nýja markvarðarparið kostaði samtals 21 milljón evra (Ter Stegen 12 og Bravo 9) sem er jafnvirði 3,2 milljarða króna. Alvöru fjárfesting í mikilvægri stöðu á vellinum.

En þá er spurningin um hvor eigi að byrja. Það verður að sjálfsögðu hausverkur LuísEnrique, nýráðins þjálfara Barcelona, en stuðningsmennirnir hafa kveðið upp sinn dóm.

Spænska fótboltavefsíðan setti upp skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Barcelona þar sem þeir áttu að skera úr um hvort ætti að vera aðalmarkvörður; Ter Stegen eða Bravo. Sextíu prósent þeirra sem tóku þátt völdu Sílemanninn Bravo og vilja að hann byrji.

Það þarf þó að taka það með í reikninginn að Spánverjarnir hafa fylgst með Bravo í átta ár með Sociedad en líklega minna séð af Ter Stegen. Þá er Þjóðverjinn líka níu árum yngri og á framtíðina fyrir sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×