Tónlist

Pearl Jam tekur Let It Go úr Frozen

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Hljómsveitin Pearl Jam hélt tónleika í Mílanó á Ítalíu á föstudagskvöldið.

Sveitin tók lagið Daughter eins og þeim einum er lagið en þegar kom að löngu gítarriffi í laginu ákvað söngvarinn Eddie Vedder að skipta um gír og byrjaði að syngja lagið Let It Go úr teiknimyndinni Frozen.

Þetta athæfi Eddies má sjá í meðfylgjandi myndbandi og hafa dætur hans tvær, Olivia, tíu ára, og Harper, sex ára, eflaust verið hæstánægðar með pabba sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.