Lífið

Bretadrottning heimsækir tökustað Game of Thrones

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Elísabet Bretadrottning heimsótti tökustað sjónvarpsþáttanna Game of Thrones í Belfast á Norður-Írlandi í dag en þættirnir eru teknir upp í Titanic-myndverinu.

Elísabet var lóðsuð um verið af höfundum þáttanna, David Benioff og Dan Weiss. Þá heilsaði hún einnig uppá stjörnur þáttanna, þau Lena Headey, Kit Harington, Maisie Williams, Sophie Turner og Conleth Hill.

Elísabet skoðaði meðal annars járnhásætið víðfræga en vildi þó ekki setjast í það. Hún tók hins vegar vel á móti gjöf sem hún fékk sem var smækkuð útgáfa af hásætinu.

Fjórða þáttaröð af Game of Thrones lauk fyrir stuttu og skildi áhorfendur vægast sagt eftir í lausu lofti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.