Heilsa

Sparidrykkur

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Sparidrykkurinn góði
Sparidrykkurinn góði Mynd/getty
Margir reyna að takmarka neyslu sína á unnum sykri og fyrir suma er það alls ekkert einfalt mál. Freistingarnar eru á hverju strái og það getur verið erfitt að halda sig frá sælgæti og ís þegar neysla þess er komin upp í vana.  Þá er gott að hafa eitthvað hollara til að grípa í til þess að slá á sykurlöngunina. Þessi drykkur er mjög gómsætur og er einnig fullur af næringu og orku.

Sparidrykkur

1 banani

2-3 bollar möndlumjólk (án sykurs og sætuefna)

1 matskeið gróft hnetusmjör

1 lúka frosið mangó

1 teskeið hempfræ

2 jarðaber

1 teskeið vanillu extract

Blandið öllu vel saman í blandara og njótið!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.