Tónlist

Nile Rodgers með nýtt efni

Nile Rodgers með nýtt efni í farteskinu.
Nile Rodgers með nýtt efni í farteskinu. Vísir/Getty
Tónlistargoðsögnin Nile Rodgers hefur tilkynnt að hljómsveit hans, Chic sé að vinna að nýju lagi og í því muni bregða fyrir næstum allir þeir tónlistarmenn sem hann hefur unnið með.

Gítarleikarinn og pródúserinn ótrúlegi, hefur unnið með ótal tónlistarmönnum og er ábyrgur fyrir nokkrum af helstu slögurum undanfarna áratuga. Hann er líklega þekktastu fyrir verk sín með Daft Punk, Pharrell Williams, David Bowie, Madonnu og Duran Duran.
 
Hann greindi frá þessum fregnum á Twitter-aðgangi sínum og tjáði þar að í nýja laginu myndu þekktir einstaklingar sem unnið hafa áður með kappanum bregða fyrir.

Hljómsveit Rodgers, Chic er líklega best þekkt fyrir lög á borð við Le Freak og Good Times.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.