Heilsa

Pissaðu í glas!

Það er lítið mál að skila af sér þvagsýni
Það er um að gera að velta helginni aðeins fyrir sér á mánudeginum og þá einna helst skemmtun nýliðinnar helgi.

Ef þú varst ein/nn af þeim sem vermdir bólið með nýjum rekkjunaut og „gleymdir“ að nota smokkinn þá gætir þú verið með kynsjúkdóm.

ALLIR kynsjúkdómar geta verið EINKENNALAUSIR. Hvort sem þú er gella eða gaur.

Ekki bara einn kynsjúkdóm heldur nokkra, allt eftir því hvað bólfélagi þinn ákvað að færa þér.

Það sem meira er, það er hægt að fá kynsjúkdóm í rassinn, hálsinn og á kynfærin.

Því gætir þú verið með nokkra kynsjúkdóma í einu, á mismunandi stöðum!

Svo ef þú notaðir ekki smokkinn í bólförum helgarinnar, kíktu í tjekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.