Tónlist

Metallica tekur Oasis slagara

Metallica kemur fram víðsvegar í sumar.
Metallica kemur fram víðsvegar í sumar. Vísir/Getty
Lars Ulrich trommuleikari hljómsveitarinnar Metallica gantaðist á dögunum með það, að sveit hans ætli að byrja tónleika sína á Glastonbury-hátíðinni, á laginu Wonderwall eftir Oasis.

Þar með væru þeir að endurtaka leik sem Jay Z lék á sömu hátíð árið 2008, þegar að lagahöfundurinn og Oasis meðlimurinn, Noel Gallagher sagði í viðtali að honum þætti Jay Z ekki henta sem skemmtikraftur á Glastonbury-hátíðinni.

Metallica kemur einnig fram á Sonisphere-hátíðinni, á sunnudagskvöldinu. Hljómsveitin Iron Maiden kemur einnig fram á þeirri hátíð, á laugardagskvöldinu.

„Ég mun aldrei rökræða um það. Ég mun alltaf styðja Bruce, sama hvaða vitleysu hann setur út úr sér,“ sagði Ulrich, þegar hann var spurður út í ummæli Bruce Dickinson, söngvara Maiden, sem sagði í viðtali að hans hljómsveit væri betri en Metallica.

Á Sonisphere-hátíðinni fengu aðdáaendur Metallica að velja lagalista sveitarinnar. Ulrich sagði þó að á Glastonbury-hátíðinni verði hefðbundinn Metallica lagalisti leikinn. „Yfirleitt bý ég ekki til lagalista fyrr en 15 til 30 mínútum fyrir tónleikana,“ sagði Ulrich um lagalistagerðina.

Hljómsveitin hefur verið gagnrýnd að undanförnu en hljómsveitin Mogwai sagði á dögunum í viðtali að Metallica væri ótrúlega léleg, og tjáði þar með andúð sína á því að Metallica væri aðalnúmerið á Glastonbury-hátíðinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.