Heilsa

Búðu til þína eigin sólarvörn

Rikka skrifar
Njóttu sólarinnar áhyggjulaus
Njóttu sólarinnar áhyggjulaus Mynd/Getty


Þegar sólin er hátt á lofti eins og hún er í dag er nauðsynlegt að gæta þess að brenna ekki og skaða húðina. Sérstaklega þarf að gæta barnanna sem eru með viðkvæmari húð en við fullorðna fólkið.

Val á réttu sólarvörninni getur verið eins og að leita að nál í heystakki, svo margt er í boði.

Þar sem að húðin er stærsta líffæri líkamans og frásogar inn í líkamann það sem borið er á hana, borgar sig að vanda valið. 




Í mörgum sólarvörnum er  oft að finna alls kyns efni sem ekki eru æskileg fyrir okkur, þó að þau valdi ekki skaða, þá og þegar, er ekki vitað um hvaða áhrif til langtíma þau hafa. Besta ráðið er þá bara að búa til sína eigin sólavörn. Í uppskriftinni af þessari sólavörn er að finna zinkáburð sem ver húðina fyrir ertingu og Tea Tree olíu en hún hefur sefandi áhrif á viðkvæma húð.

Þess ber þó að geta að besta ráðið er svo að sjálfsögðu að klæða af sér sólina og gæta þess að vera ekki úti of lengi í senn.



Sólarvörn 20 SPF

100 g lífræn kókosolía

100 g lífrænt Shea butter

50 g ilmefnalaus og parabenfrír sínkáburður

8 dropar lífræn Tea Tree olía



Bræðið kókosolíuna og Shea butterið saman og hrærið afgangnum saman við. Gætið þess að blandan sjóði ekki. Best er að bræða olíuna saman í vatnsbaði. Kælið blönduna og setjið í glerkrukku og geymið við stofuhita.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.