Íslenski boltinn

Fylkir sló út Þór/KA

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Daníel
Fylkiskonur gerðu sér góða ferð norður og unnu Þór/KA í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.

Fylkiskonur byrjuðu leikinn betur og náðu verðskuldað forskotinu um miðbik fyrri hálfleiks með skalla Lucy Glidein. Akureyringar reyndu hvað sem þær gátu í seinni hálfleik en náðu ekki að jafna og lauk leiknum því með naumum sigri Fylkis.

Á Bessastaðavelli tók Álftanes á móti ÍBV. Eyjakonur lentu í örlitlum vandræðum með fyrstu deildar liðið en skoruðu sigurmark leiksins um miðbik seinni hálfleiks. Þar var að verki Nadia Lawrence sem tryggði ÍBV sæti í 8-liða úrslitum.

Úrslit:

Þór/KA 0-1 Fylkir

Álftanes 0-1 ÍBV

Upplýsingar um markaskorara koma frá www.urslit.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×