Fótbolti

Barcelona vill fá Koke

Koke.
Koke. vísir/getty
Barcelona má versla í sumar og félagið ætlar heldur betur að nýta sér það enda gæti verið lokað á félagaskipti hjá félaginu síðar.

Nú berast fréttir af því að félagið sé með miðjumann Atletico Madrid, Koke, í sigtinu en hann sló í gegn í vetur.

Forseti Barcelona, Josep Bartomeu, hefur staðfest að félagið sé mjög spennt fyrir Koke.

Hinn 22 ára gamli Koke var í lykilhlutverki hjá Atletico sem tryggði sér spænska meistaratitilinn. Hann hefur verið orðaður við fjölda félaga í allan vetur.

"Hann er stórkostlegur leikmaður og öll félög myndi vilja hafa hann í sínu liði," sagði Bartomeu.

Það gæti þó verið erfitt að fá leikmanninn sem er samningsbundinn Atletico til ársins 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×