Fótbolti

Sætur sigur hjá Molde gegn Íslendingaher Viking

Björn Bergmann var í liði Molde í dag.
Björn Bergmann var í liði Molde í dag.
Fimm Íslendingar byrjuðu inn á vellinum í leik Molde og Viking í norska boltanum í dag. Molde vann þá dramatískan 1-0 sigur.

Sigurmark þeirra kom í uppbótartíma og það skoraði Mohamed El Elyounussi. Molde á toppi deildarinnar en Viking í þriðja sæti.

Björn Bergmann Sigurðarson var í liði Molde en þeir Sverrir Ingi Ingason, Björn Daníel Sverrisson, Steinþór Freyr Þorsteinsson og Jón Daði Böðvarsson voru allir í liði Viking.

Hannes Þór Halldórsson hélt marki Sandnes Ulf hreinu í markalausu jafntefli gegn Haugesund. Steven Lennon einnig í liði Sandnes í dag.

Guðmundur Kristjánsson lék svo síðasta hálftímann fyrir Start sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Bodö/Glimt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×