Fótbolti

Hólmfríður og Þórunn léku í fjörugu jafntefli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þórunn Helga Jónsdóttir hefur átt fast sæti í byrjunarliði Avaldsnes það sem af er tímabili.
Þórunn Helga Jónsdóttir hefur átt fast sæti í byrjunarliði Avaldsnes það sem af er tímabili. Vísir/Getty
Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru báðar í byrjunarliði Avaldsnes sem gerði 3-3 jafntefli við Trondheims Ørn í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Trondheims komst yfir með marki Mariu Olsvik á 13. mínútu, en hin brasilíska Debora jafnaði fjórum mínútum síðar og þannig var staðan í hálfleik.

Celcilie Pedersen kom Avaldnes yfir á fyrstu mínútu seinni hálfleiks, en Solfrid Andersen Dahle jafnaði á 51. mínútu.

Olsvik skoraði sitt annað mark eftir klukkutíma leik og kom Trondheims yfir, en Pedersen jafnaði leikinn með sínu öðru marki á 89. mínútu.

Þórunn Helga lék allan leikinn fyrir Avaldsnes, en Hólmfríður fór af velli þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum.

Avaldsnes situr í 7. sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×