Fótbolti

Viðar skoraði og lagði upp í sigri Vålerenga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn hefur verið óstöðvandi það sem af er tímabili.
Viðar Örn hefur verið óstöðvandi það sem af er tímabili. Heimasíða Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson var enn og aftur á skotskónum þegar Vålerenga sótti Brann heim í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Varnarmaðurinn Jonas Grønner, sem lék með KR seinni hluta sumars í fyrra, kom Brann yfir á 31. mínútu, en Nicolai Høgh jafnaði metin þremur mínútum síðar.

Viðar kom Vålerenga yfir með skallamarki eftir tveggja mínútna leik í seinni hálfleik. og Selfyssingurinn lagði svo upp þriðja mark Vålerenga fyrir Herman Stengel á 73. mínútu, en Hakon Lorentzen minnkaði muninn fyrir Brann fimm mínútum seinna.

Fleiri urðu mörkin ekki, en með sigrinum komst Vålerenga upp í 4. sæti deildarinnar. Viðar er markahæstur í deildinni með 11 mörk í jafnmörgum leikjum.

Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn fyrir Brann sem situr í 14. sæti með átta stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×