Heilsa

Kvikmyndahátíð útivistarfólks

Rikka skrifar
Banff stuttmyndahátíð útivistarfólks
Banff stuttmyndahátíð útivistarfólks Mynd/Banff
BANFF útivistarkvikmyndahátíðin verður haldin í Háskólabíói daganna 13. og 14. maí af Íslenska alpaklúbbnum.

Banff er árviss viðburður og er í raun hátíð útivistarfólks þar sem myndir sem eru sýndar koma inn á ýmiskonar útivistarsport svo sem klifur, fjallamennsku, paragliding, hjólreiðar, kayakróður, ævintýramennsku og ýmislegt annað sem útivistarfólk hefur gaman af.

Í lok seinna kvöldsins verður sýnd íslensk mynd frá árinu 1984 um klifurleiðangur á Þumal í Skaftafellsfjöllum. Ari Trausti er þar fremstur í flokki, en með honum í leiðangrinum voru Hreinn Magnússon, Árni Árnason, Pétur Ásbjörnsson, Sigurður Á. Sigurðsson, Birkir Einarsson, Höskuldur Gylfason, Sigurður Grímsson og Karl Sigtryggsson.

Myndin hefur einu sinni verið sýnd í Sjónvarpinu (1985) en hvergi annars staðar. Flott mynd sem hefur sögulegt gildi fyrir fjallamennsku á Íslandi.

Frekari upplýsingar og dagskrána er hægt að finna á isalp.is/banff






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.