Fótbolti

Morata með tvö mörk í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Álvaro Morata var á skotskónum í dag.
Álvaro Morata var á skotskónum í dag. Vísir/Getty
Real Madrid bar sigurorð af Espanyol í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Lokatölur urðu 3-1, Real Madrid í vil. Leikurinn skipti litlu máli fyrir bæði lið, en eftir úrslit síðustu umferðar var ljóst að Madrid ætti ekki lengur möguleika á Spánarmeistaratitlinum.

Cristiano Ronaldo lék ekki með Madrid í dag, en það kom ekki að sök. Gareth Bale kom liðinu eftir rúmlega klukkustundar leik og Álvaro Morata bætti við tveimur mörkum undir lok leiksins. Pizzi skoraði mark Katalóníuliðsins.

Eftir viku mætir Real Madrid nágrönnum sínum í Atletico Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Leikvangi ljóssins í Lissabon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×