Tónlist

Söngvari Metallica spreytti sig á Bítlalagi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
James Hetfield, söngvari þungarokkshljómsveitarinnar Metallica, spreytti sig á Bítlaslagaranum In My Life á góðgerðartónleikum í San Fransisco á fimmtudag. Hann hefur ekki gert mikið af því að koma einn fram en flutningur rokkarans vakti mikla lukku meðal viðstaddra.

Auk Bítlalagsins flutti hann Metallica-lögin Nothing Else Matters og Until it Sleeps, en hann naut aðstoðar Green Day-söngvarans Billies Joe Armstrong og gítarleikarans Joes Satriani í lagasyrpu sem innihélt lögin American Idiot og Boulevard of Broken Dreams eftir Green Day og Turn the Page eftir Bob Seger.

Lögin má hlusta á hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.