Fótbolti

Bananakastarinn handtekinn

Dani Alves.
Dani Alves. vísir/getty
Spænsk yfirvöld hafa handtekið manninn sem kastaði frægasta banana allra tíma inn á völlinn í leik Villareal og Barcelona.

Dani Alves, bakvörður Barcelona, tók upp bananann, fékk sér bita og lagði svo upp tvö mörk. Vakti athæfðið athygli út um allan heim.

Sá sem var handtekinn er 26 ára gamall stuðningsmaður Villareal. Hann ku heita David Campaya Lleo.

Ársmiðinn hefur verið tekinn af Lleo og hann fær aldrei aftur að mæta á leik hjá félaginu.


Tengdar fréttir

Neymar: Við erum öll apar

Það vakti heimsathygli í gær þegar Dani Alves, leikmaður Barcelona, tók bita af banana sem var hent að honum í leik Barcelona í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×