Tónlist

Banks kemur fram á Secret Solstice

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jillian Banks verður í Laugardalnum í sumar.
Jillian Banks verður í Laugardalnum í sumar.
Bandaríska söngkonan Jillian Banks, betur þekkt sem Banks, er á hraðri uppleið í jaðar R&B tónlistar heiminum í dag.

Banks mun koma fram á tónlistahátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum í sumar en hún er ein af fjölmörgu þekktu erlendu tónlistarmönnum sem koma fram á hátíðinni.

Banks spilaði nýverið  á Coachella hátíðinni og var þar valin á topp 10 lista yfir atriði sem að stóðu mest uppúr hjá „The Hollywood Reporter”, Banks var einnig tilnefnd til MTV Brand New verðlaunanna sem að voru haldin í ár.

Hún hefur gefið út tvær smáskífur á árinu 2013 en vinnur nú í sinni fyrstu breiðskífu sem mun koma út í september á þessu ári, platan ber heitið „Goddess”.

Tónlistahátíðin Secret Solstice fer fram í Laugardalnum frá 20. - 22. júní í sumar.


Tengdar fréttir

Vill bara rauð M&M

Plötusnúðurinn Carl Craig mun koma fram á tónlistahátíðinni Secret Solstice í sumar en hann er einn af fjölmörgum þekktum erlendum plötusnúðum sem koma fram á hátíðinni.

Woodkid kafar í Silfru

Woodkid, sem er væntanlegur til landsins á tónlistahátíðina Secret Solstice, er mikill Íslandsvinur og hefur komið hingað í heimsókn í tvígang.

„Gáfum aldrei út dánartilkynningu“

Hljómsveitin Maus hefur snúið aftur og ætlar að vera virk þetta árið. Sveitin er bókuð á þrjár tónleikahátíðir á árinu en er þó ekki viss um hvort ný plata sé væntanleg.

Fjölhæf leikkona á leið til Íslands

Aðdáendur Game of Thrones geta glaðst yfir því að leikkonan frækna Natalia Tena kemur til Íslands í sumar ásamt hljómsveit sinni, Molotov Jukebox.

72 tímar af dagsbirtu

Metro birtir grein í dag um tilurð hátíðarinnar sem haldin verður í fyrsta sinn í Laugardalnum í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.