Fótbolti

Lineker í vanda út af eyrnaloforði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gary Lineker.
Gary Lineker. Vísir/Getty
Gary Lineker lofaði að fara í aðgerð á eyrunum sínum ef Real Madrid myndi vinna Bayern München, 1-0.

Liðin mættust í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær og reyndust þetta lokatölur leiksins.

Eins og sjá má hér fyrir neðan þá hafði Lineker enga trú á því að mark Karim Benzema myndi reynast það eina í leiknum.

Lineker er fyrrum landsliðsmaður Englands en starfar í dag hjá breska ríkissjónvarpinu, BBC.


Tengdar fréttir

Benzema sá um Bayern | Sjáðu markið

Real Madrid er í góðri stöðu í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur á heimavelli á Evrópumeisturum Bayern München.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×