Lífið

Löðrandi af kynþokka

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þriðja undanúrslitakvöld Ísland Got Talent verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagskvöldið.



Í þættinum berjast keppendur um pláss í úrslitaþættinum. Snorri er meðal keppenda og við kynnumst honum aðeins betur.

Fullt nafn: Snorri Eldjárn Hauksson

Aldur: 23 ára

Starf: Ég er nemi í Háskólanum á Akureyri og læri þar sjávarútvegsfræði. Annars starfa ég í sumarafleysingum í Sölku-Fiskmiðlun HF.

Símanúmer til að kjósa hann í Ísland Got Talent: 9009504



Af hverju á fólk að kjósa þig?

Af því að ef ég kemst í úrslitin verður atriðið mitt þar löðrandi af kynþokka.



Hver er draumurinn?

Draumurinn er að starfa við að skemmta fólki. Helst sem leikari eða söngvari. Ég er mikill söngleikjamaður og nýt mín hvergi betur en í sviðsljósinu fyrir framan fullan sal. Draumahlutverkið verður að teljast Bond eða Batman.



Hver er þín fyrirmynd í lífinu?

Pabbi hefur alltaf verið frábær fyrirmynd í mínu lífi. Ég leit mikið upp til hans en nú er ég 195 cm á hæð og nú lít ég niður til hans. Ég er stoltur að geta kallað mig son hans. Verst er þó að Bond og Batman teljast varla miklar fyrirmyndir í söngnum þó svo að Pierce Brosnan hafi leikið í Mamma Mia. Í söngnum lít ég helst upp til Dalvíkur-þríeykisins Eyþórs Inga, Matta Matt og Friðriks Ómars. Þeir eru allir stórkostlegir söngvarar.



Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got Talent?

Ummæli Bubba í áheyrnaprufunum. Ég stóð svo stressaður fyrir framan dómarana að bíða úrskurðar þeirra og Bubbi ákveður bara að baða mig hrósum. Þessi minning er svo sterk að ég man ekkert hvernig ég lét næstu 10 mínúturnar, spennufallið var svo mikið. Það er gaman að eiga þetta hrós á youtube. Sama hvað gerist þá get ég alltaf verið gaurinn sem fékk þetta hrós frá Bubba. Takk Bubbi.



Bubbi eða Þorgerður Katrín?

Þessi er snúin. Bubbi sagði að ég væri ein besta íslenska karlrödd sem hann hefði heyrt í langan tíma, en ég lofaði Þorgerði að ef hún gefði mér já myndi ég heilla hana næst. Því ætla ég að vera mjög diplómatískur og segja bæði betra.


Tengdar fréttir

Hvern ætlar þú að kjósa á sunnudaginn?

Næsta sunnudagskvöld fá áhorfendur Stöðvar 2 að sjá næstu átta atriði sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljóna verðlaunafé í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Þau keppa næsta sunnudag

Hér má sjá keppendurna sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljónirnar í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Keppendur skelltu sér í bíó

Mikil stemning var í hópnum og allir ánægðir með myndina One Chance enda ekki annað hægt því myndin er frábær.

Píanó- og danssnillingar komust í úrslit

Dansparið Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Höskuldur Þór Jónsson og píanó- og söngkonan Laufey Hlín Jónsdóttir tryggðu sér í kvöld möguleikann á tíu milljónum króna í Ísland got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.