Lífið

Snyrtilegri núna en síðast

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þriðja undanúrslitakvöld Ísland Got Talent verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagskvöldið.

Í þættinum berjast keppendur um pláss í úrslitaþættinum. Sönghópurinn Mr. Norrington er meðal keppenda og við kynnumst meðlimum hans aðeins betur.

Fullt nafn: Hrafn Bogdan Seica Haraldsson, Bjarni Daníel Þorvaldsson og Sigurður Sævar Magnúsarson

Aldur: Erum allir fæddir 1997 og því 16 og 17 ára, eftir því hvenær við eigum afmæli.

Símanúmer til að kjósa hópinn í Ísland Got Talent: 9009505

Af hverju á fólk að kjósa ykkur? 

Við höfum hingað til stækkað atriðið okkar á hverju stigi keppninnar og munum halda því áfram. Ef fólki líkar það sem það sér og heyrir á sunnudaginn ætti næsta atriði frá okkur ekki að valda því vonbrigðum. Við ætlum að reyna að koma fólki á óvart og það finnst mér einmitt vera það sem keppnin snýst um.  Þess vegna hvetjum við fólk til þess að kjósa Mr. Norrington!  900-95-05, skrifið það niður!

Hver er draumurinn?

Það væri auðvitað alger draumur að geta starfað við tónlist í framtíðinni og vekja athygli, svoleiðis að það væri alltaf nóg að gera í söngnum. Svo væri auðvitað alltaf hægt að dunda sér við myndlist eða fótbolta.

Hver er ykkar fyrirmynd í söngnum?

Það er svolítið misjafnt.

Bjarni Daníel: Þeir eru nokkrir. Ég skal ramma það niður en ég verð samt að nefna tvo. Ég lít mikið upp til Morrissey, þá helst þegar hann var í Smiths  en helsta fyrirmyndin er sennilega Chet Baker. Hann var með einstaka rödd.

Hrafn: Egill Ólafsson.

Siggi: Egill Ólafsson.

Í hverju ætlið þið að vera?

Adidas göllum og strigaskóm. DJÓK. Við viljum ekki skemma spennuna fyrir honum Bubba en við lofum ykkur því að vera snyrtilegri til fara núna en síðast!

Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got Talent? 

Það var auðvitað frábært að komast áfram í bæði skiptin en því miður er það sennilega eftirminnilegast þegar Bubbi sagði okkur að við mættum alveg klæða okkur betur við svona tilefni. Jæja, við gerum þessi mistök alla vega ekki aftur.

Þorgerður Katrín eða Bubbi?

Úff, það er ómögulegt að svara þessari. Þau eru bæði miklir töffarar og fagfólk á sínu sviði!


Tengdar fréttir

Hvern ætlar þú að kjósa á sunnudaginn?

Næsta sunnudagskvöld fá áhorfendur Stöðvar 2 að sjá næstu átta atriði sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljóna verðlaunafé í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Þau keppa næsta sunnudag

Hér má sjá keppendurna sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljónirnar í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Keppendur skelltu sér í bíó

Mikil stemning var í hópnum og allir ánægðir með myndina One Chance enda ekki annað hægt því myndin er frábær.

Píanó- og danssnillingar komust í úrslit

Dansparið Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Höskuldur Þór Jónsson og píanó- og söngkonan Laufey Hlín Jónsdóttir tryggðu sér í kvöld möguleikann á tíu milljónum króna í Ísland got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.