Fótbolti

Schweinsteiger sá rautt í jafntefli á Old Trafford | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Manchester United og Bayern München skildu jöfn, 1-1, í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Bayern var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og kom United varla við boltann. Þrátt fyrir það fékk United dauðafæri þegar DannyWelbeck slapp einn í gegn en ManuelNeuer varði lausa vippu hans auðveldlega.

Manchester United komst yfir með marki NemanjaVidic á 58. mínútu en hann skallaði hornspyrnu Wayne Rooney í netið.

Níu mínútum síðar jafnaði BastianSchweinsteiger metin fyrir Evrópumeistarana þegar hann skoraði eftir undirbúning Mario Mandzukic, 1-1.

Schweinsteiger kláraði þó ekki leikinn því hann fékk annað gult spjald og þar með rautt fyrir að brjóta á Wayne Rooney á 90. mínútu.

Javi Martínez, leikmaður Bayern, fékk einnig gult spjald og verður heldur ekki með þegar liðin mætast í seinni leiknum á Allianz-Arena.

Hér að ofan má sjá mark Nemanja Vidic en hér að neðan er jöfnunarmark Bastians Schweinsteigers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×