Fótbolti

Real Madrid fór létt með Dortmund | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Real Madrid er komið hálfa leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir öruggan 3-0 sigur gegn Dortmund á heimavelli í kvöld.

Heimamenn voru ekki lengi að skora fyrsta markið en það gerði Walesverjinn Gareth Bale eftir rétt tæpar þrjár mínútur. Hann batt endahnútinn á góða sókn Real með fínu skoti úr teignum.

Real var 2-0 yfir í hálfleik því einn af gulldrengjum spænska boltans, Isco, skoraði laglegt mark með skoti fyrir utan teig á 27. mínútu leiksins.

Spænska liðið réði lögum og lofum í leiknum og fékk ótal færi til að bæta við mörkum. Cristiano Ronaldo nýtti eitt þeirra og skoraði þriðja mark Real Madrid og 14. mark sitt í Meistaradeildinni á 57. mínútu.

Dortmund átti ekkert í Real Madrid í leiknum og þarf eitthvað mikið að gerast á Signal Iduna-leikvanginum eftir viku ef þýska liðið á að fara áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×