Tónlist

Miley reykir fáránlega mikið gras

Wiz og Miley
Wiz og Miley
„Brjálæði!“ sagði Wiz Khalifa um samstarf sitt við Miley Cyrus, en þau unnu saman að lagi, Black Hollywood, sem er að  finna á nýrri plötu Wiz.

„En á góðan hátt. Hún er algjör orkubolti, veistu hvað ég meina? Og hún reykir heilan helling,“ sagði Wiz jafnframt í viðtali á mánudaginn við Arsenio Hall.

Hall bað hann að útskýra hvað hann meinti með heilum helling.

„Ég veit það ekki. Hún er ung svo að það er öðruvísi. En á fimm mínútna fresti sagði hún: Wiz, ertu ekki að rúlla jónu?“

Þetta ætti þó ekki að koma þeim sem fylgst hafa með söngkonunni ungu undanfarið mikið á óvart, en Cyrus hefur alltaf verið opin með grasreykingar sínar. Í viðtali við Rolling Stone magazine árið 2013 útskýrði Miley hvers vegna henni þætti gras betra en kókaín.

„Mér finnst gras vera besta eiturlyf í heiminum,“ sagði hún og bætti við. „Hollywood er kókaín-bær, en gras er miklu betra. Og mollý, líka. Það eru glöð eiturlyf - félagsleg eiturlyf. Sem láta þig langa að vera með vinum og opinn. Maður er ekki inn á klósetti. Mér líkar ekki kókaín. Það er svo ógeðslegt og dimmt eiturlyf. Og maður spyr sig, ertu frá tíunda áratugnum eða? Oj.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.