Lífið

Gígantískur styrkur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Annar undanúrslitaþátturinn af Ísland Got Talent verður sýndur á Stöð 2 á sunnudagskvöldið. Sjö atriði af ýmsum toga keppa um atkvæði þjóðarinnar til að eiga möguleika á að komast í úrslitaþáttinn og vinna tíu milljónir króna. 

Ásta Kristín ætlar að sveifla sér á súlu í undanúrslitunum. Við kynntumst henni aðeins betur.

Fullt nafn: Ásta Kristín Marteinsdóttir

Aldur: 22 ára.

Starf: Aðstoðarþjálfari hjá Pole Sport, doula og mamma.

Símanúmer til að kjósa hana í Ísland Got Talent: 900-9501

Af hverju á fólk að kjósa þig?

Ég vona bara að fólk njóti sýningarinnar og kjósi þann sem því finnst hafa unnið fyrir því og eiga það skilið.

Hver er draumurinn?

Draumurinn minn er að geta lifað á því að gera það sem ég elska að gera og það sem ég elska að gera er að sýna listir á súlu.

Uppáhaldslistamaður/menn?

Mínar helstu fyrirmyndir eru bara hinir og þessir úr súluheiminum, það er enginn uppáhalds en alveg fullt af fólki samt sem áður sem ég lít upp til.

Hvað er erfiðast við atriðið þitt?

Styrkurinn sem þarf til þess að gera svona rútínu er gígantískur þannig að ég myndi segja að æfingarnar séu það erfiðasta.

Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got Talent?

Það sem stendur upp úr úr Ísland got talent hjá mér er sennilega áheyrnarprufurnar, tilfinningin sem ég fékk þegar ég stökk á súluna og allur salurinn klappaði var ólýsanleg.

Bubbi eða Þorgerður Katrín?

Þau hafa bæði sína kosti og galla.


Tengdar fréttir

Þau keppa næsta sunnudag

Hér má sjá keppendurna sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljónirnar í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Keppendur skelltu sér í bíó

Mikil stemning var í hópnum og allir ánægðir með myndina One Chance enda ekki annað hægt því myndin er frábær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.