Fótbolti

Neuer: Augsburg skiptir ekki máli | Manchester United skiptir öllu máli

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Þýski markvörðurinn Manuel Neuer var fljótur að hrista af sér óvænt tap Þýskalandsmeistara Bayern Munchen gegn Augsburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Það er leikurinn á miðvikudaginn sem öllu máli skiptir.

1-0 ósigur Bayern í gær var fyrsta tap liðsins í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en liðið hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs í öllum keppnum en Bayern og Manchester United skildu jöfn 1-1 í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni á Old Trafford.

„Við tókum Augsburg alvarlega. Aðalmálið er samt að enginn meiddist. Það skiptir öllu,“ sagði Neuer eftir leikinn í gær en Bayern hefur þegar tryggt sér sigur í þýsku úrvalsdeildinni.

„Það er leikurinn á miðvikudaginn gegn Manchester United sem skiptir öllu máli. Ekkert annað skiptir máli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×