Lífið

Hvernig er þetta hægt? - Bubbi til sálfræðings

Ellý Ármanns skrifar
Margrét Hörn, 14 ára, og Höskuldur Þór, 15 ára, sem hafa dansað saman í hvorki meira né minna en tíu ár dönsuðu fyrir dómnefndina og slógu þetta svona líka í gegn. Ef myndskeiðið er skoðað er magnað að sjá hvað dansparið er fært um að gera. 

„Sko ég hef aldrei fílað dans og er búinn að vera þannig í mörg mörg ár. Ég er búinn að panta mér sálfræðitíma og ætla að fara að ræða við sálfræðinginn minn um þetta vegna þess að málið er það að mér þótt þetta rosalega flott og ég ætla að segja já,“ sagði Bubbi Morthens dómari eftir frammistöðu Margrétar og Höskuldar sem komust áfram í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent sem er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.