Lífið

Gervais vill aftur á svið

Ricky Gervais er í stuði sem kynnir.
Ricky Gervais er í stuði sem kynnir. Vísir/Getty
Leikarinn og grínistinn Ricky Gervais er til í að kynna aftur Golden Globe-verðlaunahátíðina sé eftirspurn eftir því. 

Gervais hefur áður harðneitað að taka það verkefni að sér á ný en hann hefur verið kynnir þrisvar sinnum áður. Árið 2010, 2011 og 2012.

Þá þóttu brandarar kappans um kollega sína á borð við Mel Gibson, Ashton Kutcher og Kim Kardashian ansi grófir. 

Gervais segir í samtali við Access Hollywood að hann mundi vilja kynna hátíðina aftur en hann vill fyrst leyfa áhorfendum að gleyma frammistöðu hans á sviðinu 2012. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.