Tónlist

Miley stælir stjörnurnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Söngkonan Miley Cyrus er nú á sínu fjórða tónleikaferðalagi sem heitir einfaldlega Bangerz, eins og platan sem hún gaf út í fyrra.

Tónleikaferðalagið hófst í Kanada um miðjan febrúar og lýkur í júní í Barcelona á Spáni.

Miley klæðist ýmsum, litríkum dressum á ferðalaginu og sækir greinilega innblástur í fyrirmyndir sínar í poppmenningunni, til dæmis Madonnu og Britney Spears.

Christina Aguilera gerði þetta lúkk frægt um svipað leyti og plata hennar Stripped kom út árið 2002. Nú hefur Miley fetað í fótspor hennar.

Söngkonan klæðist efnislitlu, hvítu bandadressi á Bangerz-ferðalaginu en það dress er mjög svipað því sem Britney Spears klæddist á tónleikaferðalaginu Femme Fatale árið 2011.

Miley hefur eflaust horft oft á kvikmyndina The Best Little Whorehouse in Texas frá árinu 1982 enda leikur guðmóðir hennar, kántrísöngkonan Dolly Parton, aðalhlutverkið.

Miley er þekkt fyrir að vera ansi djörf á sviði eins og söngkonan Madonna var á tónleikaferðalagi sínu Blond Ambition árið 1990.

Rauði kjóllinn hennar Miley minnir um margt á þann sem Jessica Rabbit klæddist oft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.