Fótbolti

Ronaldo afgreiddi Malaga

Ronaldo fagnar með Benzema.
Ronaldo fagnar með Benzema. vísir/getty
Real Madrid er í fínum málum í spænsku úrvalsdeildinni og með sex stiga forskot á toppi deildarinnar eftir útisigur á Malaga í kvöld.

Cristiano Ronaldo var einu sinni sem oftar í aðalhlutverki hjá Real í kvöld og hann skoraði með laglegu skoti í fyrri hálfleik eftir undirbúning frá Gareth Bale.

Real gekk illa að skora fleiri mörk og ganga frá leiknum. Lokakafli leiksins var því æsilegur en ekki tókst liðunum að bæta við mörkum.

Atletico Madrid getur saxað aftur á forskot Real í kvöld en leikur liðsins var að byrja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×