Tónlist

Rolling Stones fresta sjö tónleikum

Mick Jagger og félagar hans í Rolling Stones koma ekki fram á tónleikum strax
Mick Jagger og félagar hans í Rolling Stones koma ekki fram á tónleikum strax Vísir/Getty
Hljómsveitin Rolling Stones hefur frestað sjö tónleikum sem fyrirhugaðir voru í Ástralíu og á Nýja Sjálandi á tímabilinu 19.mars til 5. apríl. Í tilkynningu segir að sveitin harmi það innilega að hluta tónleikaferðalagsins, 14 ON FIRE verðir frestað um óákveðinn tíma vegna andláts kærustu Mick Jaggers, L'Wren Scott sem tók sitt eigið líf í gær.

Þá segir einnig í tilkynningunni að sveitin þakki aðdáendum sínum kærlega fyrir þann stuðning sem henni hefur verið sýndur og voni að aðdáendur hennar skilji ástæðu frestunarinnar. Þeir aðilar sem eiga miða á tónleika sveitarinnar þurfa þó ekki að örvænta því sveitin hyggst tilkynna nýjar tónleikadagsetningar á næstunni.

Söngvari sveitarinnar Mick Jagger er eins og gefur að skilja í losti og harmi sleginn yfir andláti kærustu sinnar og tjáði sig einnig um að hann sé hrærður yfir þeim stuðningi sem hann hefur fengið í kjölfar þessara sorgartíðinda.

Eftirfarandi tónleikar í Ástralíu og á Nýja Sjálandi frestast um óákveðinn tíma:

3/19 Perth, AU @ Perth Arena

3/22 Adelaide, AU @ Adelaide Oval

3/25 Sydney, AU @ Allphones Arena

3/28 Melbourne, AU @ Rod Laver Arena

3/30 Macedon, AU @ Hanging Rock

4/02 Brisbane, AU @ Entertainment Centre

4/05 Auckland, NZ @ Mt. Smart Stadium







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.