Tónlist

Rolling Stones fluttu þetta í fyrsta sinn í 41 ár

Mick Jagger á sviði í Los Angeles þann áttunda nóvember, 1969
Mick Jagger á sviði í Los Angeles þann áttunda nóvember, 1969 Vísir/Getty
Hin goðsagnakennda hljómsveit Rolling Stones hélt tónleika á þriðjudaginn í Tókýó og spiluðu þar lag sem sveitin hefur ekki spilað opinberlega í rúma fjóra áratugi.

Lagið er frá 1973 og var á B-hlið smáskífunnar Angie og heitir Silver Train.

Gítarleikarinn Mick Taylor, sem yfirgaf sveitina árið 1974, flutti lagið með gömlu félögunum, en myndband af flutningnum má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.