Tónlist

Jón Jónsson gefur út lag í minningu frænda síns

Jón Jónsson
Jón Jónsson Vísir/Arnþór
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hefur gefið út lagið Sakna þín í minningu frænda síns, Hermanns Fannars Valgarðssonar, sem lést langt fyrir aldur fram í nóvember árið 2011. Allur ágóði af laginu rennur í LUV-sjóðinn, minningarsjóð um Hermann Fannar. 



Lagið kom upphaflega út á plötu Jóns, Wait for Fate, árið 2011 undir heitinu Miss you. Nú gefur Jón það hins vegar út á íslensku.



LUV-sjóðurinn var stofnaður til minningar um Hermann Fannar. Markmið sjóðsins er að styðja við bakið á góðum málefnum. Hópurinn á bak við sjóðinn hefur staðið fyrir ýmsum uppákomum á síðustu árum meðal annars risatónleikum í Kaplakrika árið 2011, í samstarfi við X-ið 977, þar sem margar af frægustu hljómsveitum landsins stigu á stokk. 



LUV-sjóðurinn hefur meðal annars styrkt Hjartaheill og Barnaspítala Hringsins. Í ár mun sjóðurinn styrkja Ljónshjarta, stuðningsfélag fyrir ekkjur, ekkla, börn þeirra og aðstandendur.



Hægt er að nálgast lagið hér
 en lagið kostar litlar 499 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.