Fótbolti

Atletico tapaði gegn Osasuna | Fullkomin helgi fyrir Real Madrid

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Osasuna kom öllum að óvörum í óvæntum 3-0 sigri á Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Atletico þurfti á sigri að halda til að halda í við nágrannana í Real Madrid eftir sigur þeirra gegn Elche í gær. Liðin mætast á heimavelli Atletico um næstu helgi.

Osasuna náði forskotinu þegar Alvaro Carmona skoraði fyrsta mark leiksins á sjöttu mínútu.  Emiliano Armenteros bætti við öðru marki Osasuna um miðbik hálfleiksins áður en Roberto Torres gekk endanlega frá Madrídarmönnum rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Þrátt fyrir að spila mun betur í seinni hálfleik gekk Atletico illa að skapa sér færi og gerðist það ekki fyrr en á lokamínútum leiksins sem þeir fengu almennilegt færi en Diego Costa skaut hátt yfir markið úr þröngu færi.

Leiknum lauk því með 3-0 sigri Osasuna sem fullkomnaði helgi leikmanna Real Madrid. Cristiano Ronaldo og félagar í Real Madrid eru á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir tap Barcelona í gær gegn Real Sociedad og tap Atletico í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×