Er verið að leggja eina valdamestu konu landsins í einelti? Andri Þór Sturluson skrifar 25. febrúar 2014 11:43 Ef þú gagnrýnir hrekkjusvín þá er það einelti.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Elín Hirst, segir að sér finnist framkoman í garð Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokks, einkennast af einelti. Því hefur verið harðlega svarað af þingmönnunum Birgittu Jónsdóttur, Oddnýju G. Harðardóttur og Guðbjarti Hannessyni. Auk þess hafa Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri og bloggari, og Freyja Haraldsdóttir, baráttumanneskja fyrir mannréttindum, svarað því en Freyja segir á Facebook síðu sinni: „Vigdís starfar á Alþingi sem er ein valdamesta stofnun landsins. Hún hefur stjórnmálaflokk í ríkisstjórn á bakvið sig. Hún hefur óheft aðgengi að fjölmiðlum og lætur ljós sitt nú aldeilis skína þar. Hún hefur sagst elska að vera hötuð í viðtali í kjarnanum. Alveg eins og þolendur eineltis í skólum og á óbreyttum vinnustöðum. Alveg nákvæmlega eins. Vitið þið; ég bara get ekki meir.“ Það er greinilegt að stríðnispúkarnir hafa fundið sér nýtt fórnarlamb til að níðast á en nú á að leggja Elínu Hirst í einelti. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa nefnilega endurskilgreint hugtakið einelti. Gagnrýni heitir nú einelti ef hún beinist að þingmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Einelti er viðurstyggilegt og ljótt. Hættum að gagnrýna þá sem minna mega sín. Fólk getur ekkert að því gert ef það er ekki starfi sínu vaxið.
Harmageddon Mest lesið Púlsinn 19.ágúst 2014 Harmageddon „Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon Sannleikurinn um Hátíð vonar Harmageddon Ofsóttur af Boko Haram - óvelkominn á Íslandi Harmageddon Heitasti kvensjúkdómalæknir í heimi Harmageddon Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon
„Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon
„Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon