Tölvuleikjamarkaðurinn þenst út Óli Kristján Ármannsson skrifar 26. febrúar 2014 10:14 Stúlka drepur tímann í iPad-spjaldtölvu sinni með tölvuleiknum Hay Day frá Supercell. Því er spáð að fartæki og netleikir saxi hratt á hlut einkatölva og leikjatölva á næstu misserum. Vísir/AP
Veltutölur í tölvuleikjaiðnaði eru gífurlegar og virðist vöxtur í geiranum engan enda ætla að taka ef marka má spár. Greiningarfyrirtækið Gartner gerði undir lok síðasta árs ráð fyrir að stærð tölvuleikjamarkaðarins, þar sem horft er til tölvuleikja af öllu tagi og á hvers kyns tækjum, næmi árið 2013 tæplega 93,3 milljörðum Bandaríkjadala. Upphæðin samsvarar rúmum 10.576 milljörðum íslenskra króna. Fyrirtækið gerir í áætlun sinni ráð fyrir vexti upp á tæp 18,3 prósent á milli 2012 og 2013. Tölvuleikir á fartækjum (snjallsímum, spjaldtölvum og viðlíka tækjum) eru svo sagðir sá geiri þar sem vöxtur er hvað hraðastur í leikjaiðnaði. Fyrirtækið spáir svo áframhaldandi vexti þannig að markaðurinn fari í 101,6 milljarða dala á þessu ári (vaxi um 8,9 prósent í 11.521 milljarð króna) og vaxi svo um önnur 9,3 prósent milli 2014 og 2015. "Tölvuleikir á netinu og í PC-tölvum verða vinsælir áfram en þeim geira eru þó skorður settar í stærð. Gartner býst við að hefðbundnum PC-tölvum verði ekki skipt út fyrir nýjar þegar kemur að endurnýjun hjá heimilum, heldur verði spjaldtölvur fremur fyrir valinu," segir í tilkynningu Gartner. Þetta leiði til þess að leikjatölvur og leikir fyrir fartæki nái afgerandi forystu á "hefðbundna" tölvuleiki fyrir einkatölvur. Samkvæmt gögnum Superdata Research, sem gefur út margvíslega tölfræði fyrir leikjaiðnaðinn, námu tekjur af stafrænum leikjum á Vesturlöndum 21,8 milljörðum dala á síðasta ári og jukust um 12 prósent á milli ára. Í krónum eru tekjurnar tæpir 2.472 milljarðar króna. Tölvuleikjasala í Bandaríkjunum einum hafi numið 18 milljónum dala (2.041 milljarði króna), en þar af hafi 65,6 prósent farið fram á netinu með stafrænni afhendingu.Candy Crush er einhver vinsælasti netleikur heims um þessar mundir. Framleiðandinn, King Digital Entertainment, undirbýr hlutafjárútboð þar sem safna á allt að 500 milljónum dala (56,7 milljörðum króna).Vísir/APLeikirnir sem mest voru sóttir í fartæki Apple á netinu í fyrra hafi svo verið Candy Crush Saga þegar horft er til ókeypis leikja og Minecraft þegar horft er til leikja sem greiða þarf fyrir. Superdata Research spáir líka hnignun sértækra leikjatölva og bendir á að í fyrra hafi 51 prósent leikið sér í einkatölvum, 30 prósent í leikjatölvum, 14 prósent í fartækjum og fimm prósent í smærri leikjatölvum (GameBoy og þess háttar). Í nýrri spá alþjóðlega greiningarfyrirtækisins IDC er því spáð að tekjur af tölvuleikjum fyrir einkatölvur (PC og Mac) haldi áfram að vaxa í heiminum og fari yfir 24 milljarða dala (yfir 2.721 milljarð króna) árið 2017. Þar ráði miklu aukning í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu. Spár fjárfestingarbankans Digi-Capital, þar sem horft er til tölvuleikjamarkaðar í heild, eru svo enn bjartsýnni. Þar er gert ráð fyrir að leikir á netinu og í fartæki nái yfirhöndinni með 60 prósenta hlutdeild árið 2017 og að tekjur af stafrænum leikjum fari um leið yfir 100 milljarða dala. Eftir nokkru er að slægjast í þessari þróun því í krónum talið er kakan þá orðin tæplega 11.340 milljarðar króna að stærð.
Leikjavísir Tengdar fréttir Atvinnumenn í internettölvuleik Aðalsteinn Óttarsson er þróunarstjóri hjá Riot Games sem gefur út nettengda fjölspilunar-tölvuleikinn League of Legends. Alls spila 67 milljónir leikinn á mánuði og til eru þeir sem hafa það að atvinnu að keppa í leiknum. 26. febrúar 2014 09:10 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira
Atvinnumenn í internettölvuleik Aðalsteinn Óttarsson er þróunarstjóri hjá Riot Games sem gefur út nettengda fjölspilunar-tölvuleikinn League of Legends. Alls spila 67 milljónir leikinn á mánuði og til eru þeir sem hafa það að atvinnu að keppa í leiknum. 26. febrúar 2014 09:10