Leikjavísir

Pokémon minnir á sig

Pikachu, sem kann svo sannarlega að vera sætur og Ash eru komnir á Netflix.
Pikachu, sem kann svo sannarlega að vera sætur og Ash eru komnir á Netflix. visir/getty
Ein vinsælsta teiknimyndasería sögunnar, Pokémon verður fáanleg á Netflix eftir næstu mánaðarmót. Um er að ræða tvær sígildar sjónvarpsseríur þær Pokemon: Black & White og Pokemon: Indigo League. Black & White er fjórtánda sería af Pokémon og inniheldur 48 þætti.

Þá verða bíómyndirnrar Pokemon the Movie: Black - Victini and Reshiram og Pokemon the Movie: White - Victini and Zekrom einnig í boði á Netflix eftir næstu mánaðarmót.

Pokémon kom fyrst fram á sjónvarsviðið árið 1996 sem Nintendo tölvuleikur en í kjölfarið varð Pokémon eitt dáðasta fyrirbæri heimsins. Það þekkja allir Pokéman myndirnar sem fólk safnaði í möppur, þá komu hafa komið út 700 teiknimyndaþættir og 16 bíómyndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×