Æstur öryrki kallaði þingmann Bjartrar Framtíðar nasista Andri Þór Sturluson skrifar 10. febrúar 2014 00:01 Helsti vinnustaður íslenskra nasista.
Ég hélt að þingmenn Bjartrar Framtíðar væru svona eins og litlar sætar hunangsflugur. Meinlausar en þó sífellt suðandi milli betri blóma og grænni haga. En skoðanir manna eru víst mismunandi. Sumum finnst þeir vera nasistar. Á Austurvelli í gær höfðu víst 80 manns boðað komu sína til að mótmæla skerðingu á friðhelgi einkalífs lífeyrisþega, aldraðra og öryrkja. Svona tíu til fimmtán manns mættu og fólk var mismikið hresst eins og gefur að skilja.Páll Valur Björnsson, þingmaður BF, reyndi að tala við hópinn, kynnti sig og fékk síðan yfir sig móðursýkislegt geðvonskukast óþekktrar konu sem sakaði hann og flokk hans um nasisma. Varla eru svona samlíkingar vel til þess fallnar að sameina fólk í baráttu gegn neinu öðru en alvöru nasisma enda ekki allir sáttir við svona framkomu.
Harmageddon Mest lesið Mammút í sparifötunum á útgáfutónleikum Harmageddon Myndband: Vök með nýtt lag á Nordic Radio Playlist Bar Harmageddon Queens of the Stone Age á toppi Pepsi Max listans Harmageddon Hljómsveitin Maus loksins aftur á svið Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon Söngvari Blink 182 hættur í hljómsveitinni Harmageddon Sannleikurinn: Vonar að pabbi verði ekki mikið fullur Harmageddon Sannleikurinn: Gunnar Bragi: "Var bara að spila mig hard to get“ Harmageddon Nýtt myndband með Benny Crespos Gang frumflutt á Vísi Harmageddon Púlsinn 20.ágúst 2014 Harmageddon