Tónlist

Ofurhljómsveit með tónleika til heiðurs Metallica

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Melrakkar heldur tónleika til heiðurs Metallica.
Hljómsveitin Melrakkar heldur tónleika til heiðurs Metallica. mynd/íris dögg einarsdóttir
Þetta er hljómsveit sem ætlar að spila plötuna Kill'em all frá upphafi til enda," segir Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi í Skálmöld. Hann hefur ásamt þeim Birni Stefánssyni trommuleikara, Bjarna Sigurðarsyni gítarleikara, sem báðir eru úr Mínus, Flosa Þorgeirssyni bassaleikara úr HAM og Aðalbirni Tryggvasyni söngvara úr Sólstöfum, stofnað hljómsveitina Melrakka.

Melrakkar ætla sem fyrr segir að leika fyrstu plötu Metallica, Kill'em all í heild sinni á tvennum tónleikum,  á Græna hattinum, Akureyri, föstudaginn 7. mars og svo á Gamla Gauknum í Reykjavík daginn eftir.

„Það er líklegt að við tökum fleiri Metallica-plötur fyrir eftir þessa tónleika. Ég yrði í raun hissa ef við færum ekki lengra," segir Bibbi spurður út í framhaldið.

Meðlimir sveitarinnar eru allir miklir Metallica-aðdáendur og þekkja efnið gríðarlega vel. „Þetta er rosalega skemmtilegt og við höfum þessa gömlu plötu í blóðinu."

Kill'em all er í uppáhaldi meðlima sveitarinnar. „Erfitt að færa rök gegn því að hún sé ekki í uppáhaldi, allavega þangað til við tökum Ride The Lightning."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.